Slösuð kona við Arnarstapa

Frá Arnarstapa.
Frá Arnarstapa. mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Björgunarsveitir á Snæfellsnesi eru nú á leið að aðstoða konu sem hrasaði austan við Gatklett við Arnarstapa. Konan virðist hafa hrasað í skriðu og er líklega fótbrotin. Þörf verður á böruburði að sjúkrabíl.

Ekki er mjög langt að næsta vegi en burðurinn getur verið erfiður sökum aðstæðna á vettvangi, samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert