Fjögurra bíla árekstur varð við Skógarströnd nú fyrir skemmstu samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi. Ekki er ljóst hvort slys hafi orðið á fólki.
Töluverður umferðarstraumur hefur verið í gegnum Borgarnes síðan í gær, en verslunarmannahelgin er ein mesta ferðahelgi ársins. Töluverður fjöldi fólks er einnig samankominn í Borgarnesi, þar sem unglingalandsmót UMFÍ fer fram í bænum þessa helgi.
Mikil umferð var frá höfuðborgarsvæðinu í allan gærdag og fram á kvöld. Víðast á þjóðvegum var umferðin þung.