Fjögurra bíla árekstur við Skógarströnd

mbl.is/Þórður

Fjögurra bíla árekstur varð við Skógarströnd nú fyrir skemmstu samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi. Ekki er ljóst hvort slys hafi orðið á fólki. 

Tölu­verður um­ferðarstraum­ur hefur verið í gegn­um Borg­ar­nes síðan í gær, en verslunarmannahelgin er ein mesta ferðahelgi ársins. Tölu­verður fjöldi fólks er einnig sam­an­kom­inn í Borg­ar­nesi, þar sem ung­linga­lands­mót UMFÍ fer fram í bæn­um þessa helgi. 

Mikil umferð var frá höfuðborgarsvæðinu í allan gærdag og fram á kvöld. Víðast á þjóðvegum var umferðin þung.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert