Ósamræmi hjá lögreglunni

Ferðalangar í Mjódd á leið til Vestmannaeyja á þjóðhátíð.
Ferðalangar í Mjódd á leið til Vestmannaeyja á þjóðhátíð. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Nokkuð misjafnt er eftir landshlutum hvort lögregla krefji sveitarfélög um greiðslu löggæslukostnaðar vegna bæjarhátíða.

Sveitarfélög á Suðurnesjum virðast ekki hafa verið krafin um slíka greiðslu en ÍBV var krafið um fjórar milljónir króna fyrir löggæslu á síðustu Þjóðhátíð. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, segist mótfallinn þessu.

„Við erum mjög ósátt við að þetta skuli leggjast svona þungt á bæjarhátíðir á landsbyggðinni, en þegar um er að ræða hátíðir á stórhöfuðborgarsvæðinu, þá greiðir ríkið það,“ segir Elliði í umfjöllun um löggæslu á útihátíðum. „Þetta er nánast eins og það væri rukkað fyrir heilsugæslu á landsbyggðinni en ekki í borginni.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert