Alvarlegt umferðarslys varð á gatnamótum Eyrarbakkavegar og Hafnarbrúar í dag þegar bifreið og bifhjól rákust saman. Lögreglan á Suðurlandi hefur nú lokað Eyrarbakkavegi frá Óseyrarbrú og austur að Eyrarbakka vegna slyssins.
Lögregla og sjúkralið er við vinnu á vettvangi og verið er að flytja ökumann bifhjólsins á sjúkrahús í Reykjavík. Greint er frá málinu á Facebooksíðu Lögreglunnar á Suðurlandi. Tilkynnt verður um þegar lokun verður aflétt.
Uppfært kl. 18:25:
Eyrarbakkavegur hefur nú verið opnaður að nýju. Ökumaður bifhjólsins var fluttur með sjúkrabifreið til Reykjavíkur. Hann var með meðvitund en ekki er vitað frekar um meiðsl hans að svo stöddu.