Mikill og óvæntur heiður

Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid.
Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid. mbl.is/Júlíus

„Það er okkur íbúum Sólheima óvæntur og mikill heiður að fyrsta opinbera heimsókn þeirra hjóna skuli vera til Sólheima,“ segir í fréttatilkynningu frá Sólheimum í Grímsnesi en Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og frú Eliza Reid heimsækja Sólheima á morgun. 

Tekið verður á móti forsetahjónunum klukkan 11 við Sesseljuhús þar sem gestir munu m.a. skoða sýninguna Hrein orka betri heimur. Snæddur verður hádegisverður með íbúum og munu forsetahjónin eftir hádegi skoða vinnustofur, verkstæði og fyrirtæki Sólheima. Listsýning með verkum íbúa verður skoðuð sem og sýning sem sett var upp til minningar um íslandsgöngu Reynis Péturs.

Heimsókn forsetahjónanna lýkur með samveru í Sólheimakirkju sem hefst klukkan 16.00. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert