Fallegur dagur í Skálholti

Ragnheiður og Raví leyndu ekki gleði sinni eftir athöfnina í …
Ragnheiður og Raví leyndu ekki gleði sinni eftir athöfnina í Skálholti. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Hann var fallegur brúðkauðsdagurinn þeirra Ragnheiðar Guðmundsdóttur og Ravís Rawat en þau gengu í hjónaband í Skálholtskirkju í gær í blíðskaparveðri.

„Ég er bara svo glaður,“ sagði Raví þegar hann var nýkominn út úr kirkjunni síðdegis í gær. „Við vorum rosalega heppin með veðrið, þetta er svo fallegur dagur og athöfnin svo falleg,“ segir Ragnheiður sem barist hefur við krabbamein síðustu mánuði.

Íslensk yfirvöld synjuðu þeim um leyfi til að gifta sig og var allt útlit fyrir að Raví þyrfti að yfirgefa landið í lok mánaðarins. Eftir tvær synjanir fékkst leyfið loks og drifu þau sig í að bóka kirkjuna. „Ég er svo hamingjusöm, þetta er góður dagur,“ segir Ragnheiður í umfjöllun um brúðkaupið í Morgunblaðinu í dag þar sem hún stendur við hlið Ravís og brosir hringinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert