Rannsóknarnefnd flugslysa skoðar veikindin

Engin skýring hefur enn fundist á veikindum flugliða Icelandair.
Engin skýring hefur enn fundist á veikindum flugliða Icelandair. mbl.is/Árni Sæberg

Rannsóknarnefnd flugslysa tók að eigin frumkvæði ákvörðun um að rannsaka veikindi flugliða um borð í flugvélum Icelandair eftir að flugliði varð óvinnufær um borð vegna veikinda í febrúar, að því er fréttastofa RÚV greindi frá nú í kvöld.

Síðan þá eru tvö aðskilin atvik sögð hafa komið á borð rannsóknarnefndar, bæði í þessum mánuði. Í annað skiptið hafi margir flugliðar um borð veikst og rannsóknarnefndin tekið á móti flugvélinni í Keflavík til rannsóknar.

Axel F. Sig­urðsson, trúnaðarlækn­ir Icelanda­ir, sagði í samtali við mbl.is fyrr í kvöld að veik­ind­in ættu sér senni­lega margþætt­ar skýr­ing­ar og misjafnt hve lengi fólk sé að jafna sig. „Í sum­um til­fell­um er viðkom­andi búin(n) að jafna sig þegar vél­in er kom­in á áfangastað, en í öðrum til­fell­um hafa ein­kenn­in varað leng­ur,“ segir hann. Dæmi séu um að fólk hafi verið tekið í lækn­is­skoðun og blóðprufu strax eft­ir flug hafi ein­kenn­in enn verið til staðar. „Í engu til­fell­anna hef­ur fund­ist skýr­ing á sjúk­dóms­ein­kenn­un­um.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert