Reykjanesbraut í norður, á móts við Vallahverfi í Hafnarfirði, hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna umferðaróhapps. Umferð er beint um Strandgötu. Þetta segir í tilkynningu frá lögreglu.
Uppfært 17:32
Bíll valt á Reykjanesbraut til móts við Vallahverfið. Einn maður var í bílnum og þurfti slökkviliðið að beita klippum til að ná honum út úr bílnum.
Maðurinn hefur verið fluttur á sjúkrahús til rannsókna og frekari aðhlynningar, en ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðsl hans eru.
Uppfært 17:55
Búið er að opna Reykjanesbrautina fyrir umferð á ný.