Tveir leikskólar í Grafarvogi sameinaðir

mbl.is/Styrmir Kári

Til stendur að leikskólarnir Bakki í Staðarhverfi og Hamrar í Víkurhverfi í Grafarvogi verði sameinaðir. Skóla- og frístundaráð samþykkti tillögu um sameininguna á fundi sínum í gær og mun samþykktin fara fyrir borgarráð til endanlegrar afgreiðslu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Mun sameiningin koma til framkvæmda eigi síðar en 1. janúar 2017 en haft verður náið samstarf við foreldra og starfsfólk um sameininguna. Þá verður skipaður starfshópur með fulltrúum beggja leikskóla sem mun gera áætlun um hvernig staðið verður að sameiningunni.

Í greinargerð með tillögunni segir að „með sameiningu leikskólanna verði til tvær heildstæðar skólastofnanir í Víkur- og Staðarhverfi með einn sameinaðan leikskóla og einn sameinaðan grunnskóla. Nú þegar sækja unglingar sem búsettir eru í Staðarhverfi, nám sitt í Kelduskóla/Vík og tengsl hverfanna mætti efla enn frekar með þessari skólasameiningu.“

Á undanförnum árum hefur börnum fækkað í leikskólanum Bakka og að því er fram kemur í tilkynningunni telst hann því ekki hagkvæm, fagleg og rekstrarleg eining. Leikskólinn, sem rúmar 69 börn er ekki fullnýttur en um 50 börn á leikskólaaldri eru búsett í Staðarhverfi. 

Leikskólinn Hamrar rúmar 88 börn auk 16 barna í lausri stofu en samtals mun nýr sameinaður leikskóli í Víkur- og Staðahverfi rúma á bilinu 157 til 173 börn. Akstursleið á milli starfseininga sameinaðs leikskóla er 1,7 km og stysta gönguleið um 1,8 km.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert