Tinna Dögg gefur kost á sér

Tinna Dögg Guðlaugsdóttir .
Tinna Dögg Guðlaugsdóttir . Ljósmynd: Ómar Vilhemsson

Tinna Dögg Guðlaugsdóttir gefur kost á sér í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, sem fram fer 10. september. 

Í fréttatilkynningu kemur fram að hún er 33 ára meistaranemi í lögfræði og framkvæmdastjóri Lögfróðs, Lögfræðiþjónustu Lögréttu.

„Ég fæddist í Indónesíu 5. apríl 1983.  Í ágúst sama ár var ég ættleidd af foreldrum mínum, þeim Guðlaugi Valtýssyni og Sigríði Björnsdóttur. Ég á eina yngri systur, Birnu Mjöll.  Ég ólst upp á Djúpavogi til 16 ára aldurs en þá flutti ég að heiman og hóf nám við Verzlunarskóla Íslands. Sem barn og unglingur var ég mjög virk í íþróttum, bæði í frjálsum íþróttum og í fótbolta.  Ég var mjög efnileg og komst í afreksmannahóp Frjálsíþróttasambands Íslands sem kallaðist FRÍ 2000. Þá var ég auk þess valin íþróttamaður Neista á Djúpavogi árið 1997.

Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á þjóðfélagsmálum þó svo að ég hafi ekki kannski ekki haft allra hæst um það, ef svo má að orði komast. Hinn 13. ágúst sl. birtist grein á vef flokksins þar sem Landssamband sjálfstæðiskvenna hvatti konur sérstaklega til að taka þátt í stjórnmálum og gefa kost á sér í prófkjörinu. Þá ákvað ég að láta loksins til mín taka og bjóða fram krafta mína og þá reynslu sem ég bý yfir. Sannarlega má segja að ég sé nýliði í stjórnmálum þar sem ég hef ekki verið virk í starfsemi flokksins en ég hef verið flokksbundin í áratug. 

Ég hef öðlast talsverða reynslu af félags- og trúnaðastörfum innan háskólasamfélagsins sem  ég tel ekki síður mikilvæga reynslu. Ég gegndi embætti hagsmunafulltrúa Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík (SFHR) á síðasta skólaári og sat í stjórn og framkvæmdastjórn félagsins. Þá sat ég í framkvæmdastjórn Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS) á síðasta skólaári. Ég er einnig varamaður í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) til ársins 2017 en ég var tilnefnd til stjórnarsetu af Bandalagi íslenskra sérskólanema. Í maí sl. tók ég við starfi framkvæmdastjóra lögfræðiþjónustu Lögréttu, Lögfróðs, sem ég sinni á komandi skólaári. Samhliða því starfi sit ég í framkvæmdastjórn Lögréttu, félags laganema við Háskólann í Reykjavík. Eftir að ég hóf meistaranámið í lögfræði hef ég tvívegis setið í kjörstjórnum innan háskólans. Í fyrra skiptið var ég formaður kjörstjórnar Lögréttu, félags laganema við Háskólann í Reykjavík og í það síðara var ég í kjörstjórn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík.

Eftir að hafa kynnt mér í þaula stefnumál flokksins og hvað hann stendur fyrir, fann ég að þau áttu samhljóm með mínum lífsgildum og skoðunum. Ég hef alltaf verið trúuð á frelsi einstaklingins og frjálsa samkeppni. Þá tel ég jafnræði aðila mikilvægt og að einstaklingar eigi að fá jöfn tækifæri, t.d. til atvinnu, náms, launa o.s.frv., og séu metnir að verðleikum sínum. Ég tel að slíkt stuðli að frekari framþróun í því að byggja upp réttlátt samfélag - okkur öllum til hagsbóta. 

Ég tel mig vera málsvara þeirrar kynslóðar sem er að koma sér upp þaki yfir höfuðið, mennta sig, byggja upp starfsframa og stofna fjölskyldu. Ég þekki það á eigin skinni að slíkt getur verið ansi strembið oft og tíðum og barátta á mörgum vígstöðum samtímis.

Ég er búsett í Kópavogi ásamt dætrum mínum, Söru Lind (f. 2005) og Bryndísi Ýri (f. 2007),“ segir í fréttatilkynningu sem Tinna Dögg hefur sent frá sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert