Sigríður sækist eftir 2. sæti

Sigríður Á. Andersen alþingismaður.
Sigríður Á. Andersen alþingismaður.

Sigríður Á. Andersen alþingismaður sækist eftir 2. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík sem fram fer 3. september.

„Á þessu kjörtímabili hefur orðið jákvæður viðsnúningur í efnahagslífinu. Auk samninga við slitabú föllnu bankanna um verulegt stöðugleikaframlag af þeirra hálfu í ríkissjóð hefur Sjálfstæðisflokkurinn haft forgöngu um mikilvægar breytingar sem rennt hafa stoðum undir þennan viðsnúning. Afnám allra almennra vörugjalda og afnám 2/3 álagðra tolla, lækkun tekjuskatts og hluta virðisaukaskatts eru allt skref í átt að léttari, gagnsærri og skilvirkari skattheimtu. Kaupmáttur launa hefur aukist verulega og ráðstöfunartekjur heimila einnig.

Ég hef náð góðum árangri í þeim málum sem ég hef beitt mér fyrir á Alþingi, í efnahags- og skattamálum og ekki síður í umhverfismálum en umræða um þau hefur lengi verið mjög einhliða. Ég vil gjarnan fá áfram tækifæri til að eiga frumkvæði að mikilvægum málum sem þessum og leiða vinnu sem þarf að halda áfram á næsta kjörtímabili og miðar að því að renna styrkari stoðum undir velferð hér á landi.

Ég gef því kost á mér til áframhaldandi setu á Alþingi og sækist eftir 2. sæti í komandi prófkjöri í Reykjavík,“ segir í tilkynningu frá Sigríði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert