1.900 umsóknir um sumarstörf

Störf um borð í þotum Icelandair eru eftirsótt.
Störf um borð í þotum Icelandair eru eftirsótt. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Alls bárust um 1.900 umsóknir um sumarstörf flugfreyja og flugþjóna hjá Icelandair fyrir sumarið 2017. Hafa þær aldrei verið fleiri, en í fyrra bárust um 1.500 umsóknir.

Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair, voru langflestar umsóknir frá konum en 2-300 karlar sóttu um að þessu sinni. Guðjón segir að undanfarin ár hafi verið ráðnir um hundrað, eða á annað hundrað, nýliðar til starfa árlega. Alls hafa rúmlega 1.200 flugfreyjur/flugþjónar starfað hjá fyrirtækinu í sumar.

Störfin voru auglýst í byrjun ágúst en umsóknarfrestur var til 18. ágúst. Nú tekur við langt og strangt ráðningarferli og því voru störfin auglýst jafnsnemma og raun ber vitni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert