Bannar flutning á laginu sínu

Gunnar Þórðarson hefur lengi verið eitt ástsælasta tónskáld þjóðarinnar.
Gunnar Þórðarson hefur lengi verið eitt ástsælasta tónskáld þjóðarinnar. mbl.is/Eggert

Gunnar Þórðarson, tónlistarmaður og tónskáld, hefur óskað eftir því við bæjaryfirvöld Reykjanesbæjar að lag hans, „Gamli bærinn minn“, verði ekki flutt við flugeldasýningu á laugardagskvöldi Ljósanætur líkt og venja hefur verið undanfarin ár.

„Samskipti fjölskyldu minnar við eina af undirstofnunum Reykjanesbæjar eru með þeim ólíkindum að ég banna flutning lagsins á Ljósanótt. Þetta er ekki gamli bærinn minn,“ segir Gunnar í tilkynningu á vef Víkurfrétta.

Í samtali við mbl.is sagðist Gunnar ekki vilja tjá sig um málið að sinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert