Einn heppinn vann rúma hálfa milljón

Fyrsti vinningur í lottóinu í kvöld gekk ekki út en hann hljóðaði upp á 23.045.660 krónur. Einn miðahafi var þó með fjórar réttar tölur auk bónustölunnar og fær hann 685.940 krónur í sinn hlut.

Vinningsmiðinn var seldur í áskrift, samkvæmt upplýsingum frá Íslenskri getspá.

Þá voru sjö með fjórar jókertölur í réttri röð og fá þeir kr. 100.000 hver. Tveir miðanna voru seldir á vefsíðu lottó og einn í áskrift, en hinir fjórir í Olís við Háaleitisbraut, N1 á Selfossi, N1 á Blönduósi og í Samkaupum-Strax á Selfossi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert