Stöðvaðir með fíkniefni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt bifreið á Reykjanesbraut við Lækjargötu. Ökumaðurinn er grunaður um vörslu/sölu fíkniefna og landa. Farþegi í bifreiðinni hefur einnig verið kærður fyrir vörslu fíkniefna.

Þá var bifreið stöðvuð á Breiðholtsbraut um kl. 6 í morgun. Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna, að aka sviptur ökuréttindum og vörslu fíkniefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert