Greta Salóme bæjarlistamaður Mosfellsbæjar

Greta Salóme.
Greta Salóme.

Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar hefur útnefnt Gretu Salóme Stefánsdóttur tónlistarkonu bæjarlistamann Mosfellsbæjar 2016. Viðurkenningin verður afhent við hátíðlega athöfn í Hlégarði í dag klukkan 14.

„Greta Salóme hefur frá barnsaldri verið virkur þátttakandi í tónlistarlífi Mosfellsbæjar. Hún sýndi snemma einstaka tónlistarhæfileika og er ein af þekktustu tónlistarkonum Íslands í dag,“ segir í tilkynningu frá Mosfellsbæ. 

Greta Salóme er með BA- og MA-gráður í tónlist. Hún kemur fram sem fiðluleikari, söngkona og lagahöfundur. Greta nýtir klassískan bakgrunn sinn til að flytja ýmiss konar tónlist bæði sem einleikari og einnig sem hluti af hljómsveitum eða sönghópum.

Greta Salóme hefur verið í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún er einnig konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Greta hefur í tvígang verið fulltrúi Íslands í Eurovision-keppninni og fór nú á þessu ári með sitt eigið lag. Hún hefur unnið hjá Disney-samsteypunni og komið fram á tónleikum út um allan heim.

„Mosfellsbær er Heilsueflandi samfélag og Greta Salóme hefur sýnilega lagt áherslu á heilbrigðan lífsstíl og hefur ávallt verið stoltur fulltrúi Mosfellsbæjar þar sem hún hefur komið. Sú framkoma er hvetjandi fyrir íbúa sveitarfélagsins, unga sem aldna, og í takti við þær áherslur sem lagðar hafa verið í stefnu þess,“ segir í tilkynningunni.

Þá telji menningarmálanefnd Mosfellsbæjar Gretu Salóme vera vel að þessari viðurkenningu komna. Nefndin hlakkar til samstarfs á komandi ári og óskar Gretu innilega til hamingju með góðan árangur í sínum störfum og óskar henni jafnframt velfarnaðar í framtíðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert