Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Karitas Freyju Hallgrímsdóttur, átta ára, en síðast er vitað um ferðir hennar við Setbergsskóla í Hafnarfirði á fjórða tímanum í dag.
Karitas, sem er einhverf, er há og grönn, ljóshærð með sítt slétt hár. Hún er klædd í dökkar buxur, ljósan gallajakka, svartan bol með bleikum stöfum og fjólubláa Hummel-skó.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Karitas, eða vita hvar hana er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hringja strax í lögreglu í síma 112.
Uppfært: Karitas Freyja er fundin heil á húfi.