Hætt verði að fangelsa fyrir neysluskammta

Meðal þess sem starfshópurinn lagði til er að aðgengi þeirra …
Meðal þess sem starfshópurinn lagði til er að aðgengi þeirra sem sprauti sig að hreinum sprautubúnaði verði eflt og gert gjaldfrjálst. AFP

Starfshópur um endurskoðun á stefnu í vímuefnamálum leggur til að fangelsisrefsing fyrir vörslu á neysluskömmtum af vímuefnum verði afnumin. Þá er einnig lagt til að smávægileg fíkniefnabrot fari ekki á sakaskrá, bætt aðgengi að sprautubúnaði og gjaldfrjálsri nálaskiptiþjónustu, frekari úrræði fyrir fólk í vímuefnavanda og skoðuð verði þörf fyrir uppsetningu neyslurýma fyrir þá sem sprauta sig. Þetta kemur fram í skýrslu sem heilbrigðisráðherra lagði fram á Alþingi í dag.

Skýrslan er gerð á grundvelli ályktunar Alþingis frá því árið 2014 þar sem ríkisstjórninni var falið að að „endurskoða stefnu í vímuefnamálum á grundvelli lausnamiðaðra og mannúðlegra úrræða, á forsendum heilbrigðiskerfisins og félagslega kerfisins, til aðstoðar og verndar neytendum efnanna og félagslegum réttindum þeirra, aðstandendum þeirra og samfélaginu í heild.“

Heilbrigðisráðherra skipaði starfshóp í þessu skyni með fulltrúum Embættis landlæknis, SÁÁ, ríkislögreglustjóra, geðsviðs Landspítala, Rauða krossi Íslands og velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Ráðherra skipaði Borgar Þór Einarsson formann nefndarinnar.

Lagt er til að fangelsisrefsingar fyrir vörslu á neysluskömmtum verði …
Lagt er til að fangelsisrefsingar fyrir vörslu á neysluskömmtum verði afnumdar. AFP

Tillögur starfshópsins eru eftirfarandi, en hægt er að kynna sér þær nánar í skýrslunni sjálfri:

  1. Afnám fangelsisrefsinga fyrir vörslu á neysluskömmtum,
  2. Smávægileg fíkniefnabrot fari ekki á sakaskrá,
  3. Einungis mæling á blóði verði látin gilda um vímuefnaakstur,
  4. Fjölgun afeitrunarplássa fyrir fólk í vímuefnavanda og fjölbreyttari úrræði fyrir ólíka hópa,
  5. Bætt aðgengi að hreinum sprautubúnaði og efld og gjaldfrjáls nálaskiptaþjónusta,
  6. Lágmarkskröfur verði settar til að tryggja gæði meðferðar fólks í vímuefnavanda,
  7. Einstaklingum í vímuefnavanda verði boðin skimun fyrir HIV og lifrarbólgu C þeim að kostnaðarlausu,
  8. Rannsökuð verði þörf fyrir uppsetningu neyslurýma fyrir þá sem sprauta sig með vímuefnum,
  9. Heilsugæsla verði gjaldfrjáls fyrir jaðarsetta hópa eins og heimilislausa og fólk sem neytir fíkniefna,
  10. Stofnuð verði fastanefnd sem verði samráðsvettvangur vegna vímuefnamála og heilbrigðisráðherra til ráðgjafar um stefnumótun í vímuefnamálum,
  11. Föngum í vímuefnaneyslu verði tryggð sömu réttindi til forvarna, meðferðar og skaðaminnkunar og öðrum,
  12. Rannsókna- og forvarnastarf verði eflt til að draga úr og koma í veg fyrir vímuefnaneyslu.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert