Matfugl innkallar kjúklingastrimla

Matfugls-kjúklingastrimlar.
Matfugls-kjúklingastrimlar.

Listeria monocytogenes greindist við reglubundið innra eftirlit í pakkningu af Matfugls-kjúklingastrimlum. Af þeim sökum hefur Matfugl ákveðið að innkalla vöruna í varúðarskyni.

Innköllunin nær eingöngu til pakkninga með lotunúmerinu 3101126331 með best fyrir dagsetninguna 03.09.2016.

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að skila henni til fyrirtækisins eða í viðkomandi verslun. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem innköllunin kann að valda neytendum, að því er segir í tilkynningu.

Nánari upplýsingar um Listeria monocytogenes.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert