Býður sig fram gegn Sigmundi Davíð

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, ætlar að sækjast eftir fyrsta sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir alþingskosningarnar í haust.

Höskuldur mun því etja kappi við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins, í prófkjörinu því hann sækist einnig eftir því að leiða flokkinn í kjördæminu.

Höskuldur greindi frá þessu í bréfi sem hann sendi flokksmönnum, samkvæmt Vikudegi.

Þar kemur einnig fram að hann vonist eftir því að Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra gefi kost á sér til formennsku á komandi flokksþingi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert