Tai chi og Kung fu meistarar á landinu

Þessa dagana eru margverðlaunaðir kínverskir kennarar í Tai chi og Kung fu á landinu að kenna Íslendingum leyndardóma þessara ævafornu bardagalista og líkamsræktar. Þær Yun Jun Ling og Hou Wen eru hér á vegum kínverska íþróttasambandsins og flytja bæði fyrirlestra ásamt því að vera með sýnikennslu í Heilsudrekanum.

mbl.is hitti þær stuttlega í gær og fékk að fylgjast með æfingum þeirra, en þær kenna báðar listina við kínverska háskóla og hafa iðkað tai chi frá barnsaldri. Þær segja Íslendinga hafa sýnt ágætis tilburði í tímum hjá sér en óhætt er að segja að æfingarnar sem þær gera sjálfar séu ekki á allra færi. Sjón er sögu ríkari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert