Ókeypis í strætó á morgun

Strætó verður í essinu sínu bíllausa daginn 22. september, þ.e. á morgun, en þá nær Evrópska samgönguvikan hámarki. Frítt verður í strætó á höfuðborgarsvæðinu af því tilefni.

„Við hvetjum íbúa á höfuðborgarsvæðinu til að leggja bílnum og ferðast frítt um allan bæ frá morgni til kvölds án þess að hafa áhyggjur af bílastæðum eða bensínkostnaði,“ segir í tilkynningu frá Strætó.

Heimasíða Evrópskrar samgönguviku.

Heimasíða Strætó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert