Aðalmeðferð í máli Atlantic Green Chemicals gegn Reykjanesbæ, Reykjaneshöfn og Thorsil fór fram í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Krefst félagið þess að viðurkennd sé með dómi skylda Reykjanesbæjar til að staðfesta úthlutun á lóð í Helguvík til fyrirtækisins.
Segja forsvarsmenn félagsins að því hafi verið lofað lóðinni árið 2011, en síðar var henni úthlutað til Thorsil, sem þar hyggst reisa kísilverksmiðju.
Jón Jónsson, lögmaður Atlantic Green Chemicals, segir í samtali við mbl.is að félagið hafi fengið loforð frá Reykjaneshöfn um að fá úthlutað lóðinni að Berghólabraut 4.
„Eitt lykilatriði í málinu er tölvupóstur sem hafnarstjóri Reykjaneshafnar sendi AGC árið 2011, þar sem höfnin lýsti sig reiðubúna til að afhenda AGC lóðina,“ segir Jón.
Sjá fréttir mbl.is:
Verksmiðja með jákvæð áhrif
Lóðaúthlutun til Thorsil fyrir dóm
Fulltrúar AGC hafi í kjölfarið átt fundi með Reykjaneshöfn og Reykjanesbæ, þar sem óskað hafi verið eftir lóðinni. Á sama tíma hafi verið unnið umhverfismat en hugmyndin að baki fyrirtækinu byggir á því að framleiða lífalkóhól þar sem nýtt sé afgangsgufa frá kísilveri United Silicon, sem nú hefur risið þar skammt frá.
Bygging kísilvers United Silicon frestaðist hins vegar á þeim tíma, og þar sem starfsemi Atlantic Green Chemicals gat ekki hafist án United Silicon var beðið eftir að málefni kísilversins leystust.
Í millitíðinni var Thorsil, sem hyggur á uppbyggingu annars kísilvers í Helguvík, úthlutað lóðinni sem Atlantic Green Chemicals hafði verið lofað, að sögn Jóns.
„Menn höfðu talið að þessi samskipti og loforð stæðu þar til annað væri ákveðið. Um mitt ár 2014 verða forsvarsmenn AGC svo þess varir að til standi að lóðin verði hluti þess svæðis sem úthluta eigi Thorsil.“
Hann segir AGC hafa byggt starfsemi sína og væntingar til þess að fá lóðinni úthlutað.
„Samskipti aðila báru aldrei neitt annað með sér.“
Búist er við niðurstöðu Héraðsdóms í lok október.
Áður hefur mbl.is greint frá erfiðleikum Thorsil við greiðslu gatnagerðargjalda, en í maí var fyrirtækinu veittur frestur til greiðslunnar í sjötta skipti. Upphaflega átti að greiða fyrstu greiðsluna, sem nemur um 140 milljónum króna, fyrir lok árs 2014.