Tekinn á 171 km hraða á Reykjanesbraut

Ökumaður var sviptur ökuréttindum á staðnum.
Ökumaður var sviptur ökuréttindum á staðnum. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði ökumann á 171 kílómetra hraða á Reykjanesbraut við Voga klukkan 11.54 í morgun. Ökumaður var sviptur ökuréttindum á staðnum. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum.

Leyfilegur hámarkshraði á Reykjanesbraut er 90 kílómetrar á klukkustund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert