Örtröð á Seltjarnarnesi

mbl.is/Kristín Edda

Mikið fjölmenni er við Gróttu og á bílastæðinu við golfvöllinn á Seltjarnarnesi þessa stundina til að reyna að berja norðurljósin augum, en samkvæmt spám voru miklar líkur á slíkri sýningu í kvöld. Seltjarnarnesbær hafði ásamt öðrum sveitarfélögum ákveðið að slökkva götuljós til að auðvelda fólki betur að sjá sýninguna.

Hingað til hefur aftur á móti lítið farið fyrir henni, þó að aðeins hafi glitt í þau þrisvar hingað til.

Samkvæmt viðmælanda mbl.is sem er staddur úti á Gróttu er þar bíll við bíl og örtröð á bílastæðunum tveimur. Segir hann að talsverð ljósmengun sé af bílunum sem komi niður á sama stað og ef ekki hefði verið slökkt á götuljósum.

mbl.is/Kristín Edda
Við Gróttu í kvöld.
Við Gróttu í kvöld. mbl.is/Kristín Edda
Mikið fjölmenni er við Gróttu til að bejra norðurljósin augum.
Mikið fjölmenni er við Gróttu til að bejra norðurljósin augum. mbl.is/Kristín Edda
mbl.is/Kristín Edda
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert