Slökkt á götulýsingu vegna norðurljósaspár

Spáð er mikilli ljósadýrð á himnum í kvöld.
Spáð er mikilli ljósadýrð á himnum í kvöld. mbl.is/Jónas Erlendsson

Í kvöld verður slökkt á götulýsingu á völdum stöðum í Reykjavík svo íbúar og gestir geti notið magnaðrar norðurljósasýningar sem spáð er á himni þegar aldimmt verður orðið í kvöld og nótt. 

Norðurljósin hafa glatt Reykvíkinga að undanförnu og svo verður einnig í kvöld 28. september samkvæmt norðurljósaspá. Reykjavíkurborg hefur því ákveðið að slökkva götulýsingu í völdum hverfum milli kl. 22 og 23 en þá eru góðar líkur á mikilli virkni norðurljósa, segir í tilkynningu frá borginni.

Virknin var góð seint í gærkvöldi og náði svo hámarki milli kl. 2 og 3 um nóttina. Miklar líkur eru á að svo verði einnig í kvöld. Til að norðurljósin sjáist betur og víðar mun verða slökkt á götuljósum í Reykjavík í kvöld á milli kl. 22 og 23. Verður slökkt á lýsingu í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Grafarvogi, Laugarási, Heima- og Vogahverfi, Túnum, Skólavörðuholti, Fellum, Bergum og Hólum í Breiðholti ásamt Seljahverfi. 

„Reykvíkingum ætti því að gefast einstakt tækifæri á því að sjá magnaða norðurljósasýningu í kvöld við betri aðstæður en oft áður. Enginn veit þó fyrr en eftir á hvenær virknin verður mest,“ segir í tilkynningunni.

Íbúar eru hvattir til að taka þátt og slökkva ljósin í íbúðarhúsum sínum líka svo myrkvunin verði sem mest og ljósmengun sem minnst. Þá mætti gjarnan slökkva á lýsingum bygginga í borginni.

Lögreglan, slökkviliðið og Orkuveita Reykjavíkur hefur verið upplýst um málið Fólk er hvatt til að aka einstaklega varlega á þessum svæðum og sýna tillitssemi á meðan myrkvun stendur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert