Laus úr haldi í Eyjum

Maðurinn var handtekinn í Vestmannaeyjum 17. september.
Maðurinn var handtekinn í Vestmannaeyjum 17. september. mbl.is/Árni Sæberg

Maðurinn sem er grunaður um alvarlega líkamsárás og kynferðisbrot gegn konu í Vestmannaeyjum var látinn laus úr haldi lögreglu í gær.

Frétt mbl.is: Fallist á framlengingu gæsluvarðhalds

Gæsluvarðhald yfir manninum rann út í gær. Lögreglan í Vestmannaeyjum fór fram á framlengingu gæsluvarðhalds en Héraðsdómur Suðurlands féllst ekki á kröfuna.

Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum, vildi ekkert tjá sig um rannsókn málsins að svo stöddu.

Maðurinn var handtekinn laugardaginn 17. september, grunaður um að hafa brotið gegn konu á fimmtugsaldri um nóttina. Hún var flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur um morguninn eftir að hafa fundist nakin með mikla áverka í andliti við hlið fata sinna og leikur grunur á að brotið hafi verið gegn henni kynferðislega. Líkamshiti konunnar mældist 35,3 gráður er hún fannst og sagði í áverkavottorði að hún hafi verið „af­mynduð í framan“.

Frétt mbl.is: Líkamshiti konunnar mældist 35,3 gráður

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert