Eltu norðurljósin um alla borg

Þeir Sævar Helgi Bragason og Snorri Þór Tryggvason hjá Iceland Aurora Films hafa eytt drjúgum tíma í vikunni við að mynda norðurljósin sem hafa skartað sínu fegursta. Afraksturinn má sjá í þessu fallega myndskeiði sem þeir settu saman úr myndefni sem var tekið á 16 mismunandi stöðum í borginni og var myndað í 4K gæðum.

Hér er myndskeiðið á vimeo ásamt öðrum sem Iceland Aurora Films hafa gert.

Tónlistin í myndskeiðinu er lagið „Alda“ eftir Pétur Jónsson hjá Anthemico Records

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert