Miklar hækkanir á raforkuverði

Orkusalan er sá hluti raforkuviðskipta þar sem neytendur hafa val …
Orkusalan er sá hluti raforkuviðskipta þar sem neytendur hafa val um hvaða orkusala þeir eiga í viðskiptum við. mbl.is/ÞÖK

Síðastliðin áramót var umhverfis- og auðlindaskattur á raforkusölu frá árinu 2010 afnuminn. Verð á raforku hefur engu að síður hækkað hjá öllum orkusölum undanfarið ár samkvæmt samantekt verðlagseftirlits ASÍ.

Mest nemur hækkunin ríflega 5% hjá Fallorku en minnst 2,5% hjá ON og Rafveitu Reyðarfjarðar.  Ef afnám orkuskattsins er undanskilið hefur verð á raforku hækkað sem nemur 5-8% á milli ára.

Ódýrast er að kaupa raforku hjá Orkubúi Vestfjarða, þar sem kostnaðurinn fyrir heimili sem notar 4.000 kWst. á ári nemur 27.181 kr. en dýrast er að kaupa raforku hjá Orkusölunni þar sem kostnaður er 28.421 kr. á ári fyrir sömu notkun. Munur á hæsta og lægsta verði er því 1.240 kr. eða um 4,5%.

Orkusalan er sá hluti raforkuviðskipta þar sem neytendur hafa val um hvaða orkusala þeir eiga í viðskiptum við.

Sjá nánar sundurliðaðan kostnað við orkusölu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert