Sólheimajökulsvegur enn lokaður

Sólheimajökulsvegur er enn lokaður. Staðan verður endurmetin síðar í dag.
Sólheimajökulsvegur er enn lokaður. Staðan verður endurmetin síðar í dag. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Sólheimajökulsvegur er enn lokaður. Lögreglan á Suðurlandi lokaði fyrir umferð á vegi 221 við Sólheimajökul í gærkvöldi en ákvörðunin var tekin í ljósi skjálftahrinu í Mýrdalsjökli. Samkvæmt upplýsingum frá Kjartani Þorkelssyni, lögreglustjóra á Suðurlandi, verður staðan endurmetin síðdegis í dag.

Samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofunnar hefur dregið úr skjálftavirkni frá hádegi í gær. Þá sáust engin merki um gosóróa né jökulhlaup en stöðug smáskjálftavirkni er á svæðinu.

Hér má sjá gagnvirkt kort af Kötlusvæðinu. 

Frétt mbl.is - Sólheimajökulsvegi lokað

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert