Alþjóðlegur ADHD vitundarmánuður er nú nýhafinn en október er lagður undir vitundarvakningu ár hvert. ADHD samtökin taka virkan þátt í átakinu nú líkt og fyrr með margvíslegum hætti.
Nýtt endurskinsmerki var kynnt í dag, tveir nýir fræðslubæklingar voru gefnir út og árlegt málþing samtakanna var kynnt. Málþingið verður haldið í lok október og beinist athyglin að föngum og öðrum sem lenda í refsivörslukerfinu.
Tveir nýir fræðslubæklingar voru gefnir út í dag. Annars vegar er það „Náin sambönd & ADHD", bæklingur sem ætlaður er fullorðnum einstaklingum með ADHD og mökum þeirra. Bæklingurinn er þýddur úr finnsku og staðfærður en finnsku ADHD samtökin gáfu fyrr á árinu út bæklinginn „ADHD & parisuhde".
Hins vegar er um að ræða bæklinginn „What is ADHD?", grunnbækling um ADHD á ensku. Áður hefur komið út íslenskur bæklingur og þýðing hans á pólsku.
Bæklingarnir eru fáanlegir á skrifstofu ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, Reykjavík og á rafrænu formi á vef samtakanna, www.adhd.is
Í lok vitundarmánaðar kemur svo út fræðslubæklingur um réttarvörslukerfið & ADHD. Nokkuð er um liðið síðan ADHD samtökin gáfu út fræðslubækling ætlaðan lögreglu, fangavörðum og öðrum þeim sem starfa í réttarvörslukerfinu og var tímabært orðið að endurskoða hann. Bæklingurinn kemur út í tengslum við málþing samtakanna sem haldið verður 28. október næstkomandi.
Páll Winkel, fangelsismálastjóri og starfsfólk Fangelsismálastofnunar, fengu afhent fyrstu eintök bæklinganna og endurskinsmerkisins við athöfn í fangelsinu á Hólmsheiði í dag.
„Fangelsismálastofnun fagnar því að athyglinni sé í þessu vitundarátaki beint að föngum. Mikilvægt er að fagleg umræða eigi sér stað um málefnið og að við sameinumst öll um að gera vel á þessu sviði. Það eru sameiginlegir hagsmunir okkar allra að leita leiða til að aðstoða fanga og auka þannig líkurnar á að þeir geti tekið þátt í samfélaginu án afbrota að lokinni afplánun,“ sagði Páll í tilkynningu frá ADHD-samtökunum.