Þórsmerkurvegi lokað

Þórsmörk.
Þórsmörk. mbl.is/Árni Sæberg

Ákveðið hefur verið í samráði við Vegagerðina að loka Þórsmerkurvegi í dag hið minnsta vegna vatnavaxta, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi.

Veðurspáin er að ganga eftir, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni og því munu verða gríðarmiklir vatnavextir á Þórsmerkursvæðinu.

Lögreglan biður fólk um að fylgjast með veðri og fréttum í dag og eins verða sendar tilkynningar inn á Facebook-síðu lögreglunnar ef þörf þykir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert