Ask Guðmundur hlaut fimm verðlaun

Guðmundur svarar spurningum.
Guðmundur svarar spurningum. Ljósmynd/Aðsend

Markaðsherferðin Ask Guðmundur hlaut fimm Euro Effie-verðlaun við hátíðlega athöfn í Brussel í gærkvöldi. Verðlaunin eru veitt fyrir árangursríkustu auglýsingar ársins.

Herferðin var alls tilnefnd í fjórum flokkum en vann þar að auki aðalverðlaun kvöldsins, Grand Prix, fyrir bestu herferð ársins, að því er kemur fram í tilkynningu frá Íslandsstofu.

Herferðin Ask Guðmundur er hluti af landkynningarverkefninu Inspired by Iceland og var búin til af Íslensku auglýsingastofunni og The Brooklyn Brothers í London. Íslandsstofa er framkvæmdaraðili Inspired by Iceland.

Euro Effie-verðlaunin eru ein virtustu auglýsingaverðlaun heims. Þetta var í 20. sinn sem þau voru veitt.

Ljósmynd/Aðsend

Dómnefndin var skipuð reynslumiklu fagfólki á sviði markaðssetningar og auglýsingagerðar. Auk Inspired by Iceland kepptu auglýsingaherferðir fyrir mörg af þekktustu vörumerkjum heims um Euro Effie-verðlaunin. Þar á meðal má nefna Volvo, MasterCard og Hyundai.

Inspired by Iceland vann einnig til Euro Effie-verðlauna árin 2011 og 2013. Inspired by Iceland fékk einnig Grand Prix-verðlaunin 2011 og er þetta í fyrsta skipti sem sama vörumerki fær verðlaunin tvisvar.

Ljósmynd/Aðsend

Markmið herferðarinnar Ask Guðmundur var að hvetja ferðamenn til að ferðast víðar um landið meðan á heimsókn þeirra stendur. Ferðamenn gátu nýtt samfélagsmiðla til að spyrja spurninga um Ísland. Sjö einstaklingar sem allir bera nafnið Guðmundur eða Guðmunda sáu um að svara. Hver landshluti tefldi fram sínum eigin „Guðmundi“ sem svaraði spurningum tengdum sínu svæði.

Áhugafólk um Ísland fékk þannig persónulegar ábendingar um íslenska náttúru, hefðir og siði, í stað þess að fá upplýsingar frá leitarvélum á borð við Google, samkvæmt tilkynningunni.

Alls bárust yfir 1.000 spurningar frá meira en 50 löndum víðs vegar um heiminn. Rúmlega 100 þessara spurninga var svarað með myndböndum sem var dreift á samfélagsmiðlum. Myndböndin má sjá á YouTube-rás Inspired by Iceland.

Mynd af verðlaunahöfunum.
Mynd af verðlaunahöfunum. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert