Fiskistofa greiðir tvöfalda húsaleigu

Eyþór Björnsson fiskistofustjóri, lengst til hægri, ásamt hluta starfsfólks á …
Eyþór Björnsson fiskistofustjóri, lengst til hægri, ásamt hluta starfsfólks á Akureyri - Fiskistofa. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Fiskistofa greiðir 1,8 milljónir króna á mánuði fyrir leigu á umframhúsnæði  í Hafnarfirði. Stutt er síðan nýjar höfuðstöðvar stofnunarinnar voru formlega opnaðar á Akureyri en meirihluti starfsmanna er eftir sem áður í Fiskistofu í Hafnarfirði.  

Á eftir launakostnaði starfsmanna er kostnaður vegna leigu á húsnæði næststærsti kostnaðarliður Fiskistofu.

Samið var til 10 ára við Reiti efh. sem á húsnæðið á Borgum. Ekki er hins vegar útséð um hvað verður með húsnæðið í Hafnarfirði.

„Í Hafnarfirði erum við með samning um leigu á alltof stóru húsnæði til ársloka 2025, segir Eyþór Björnsson, fiskistofustjóri.

„Þarna erum við með 7-800 fermetra sem við höfum ekki þörf á lengur og erum því að borga tvöfalda húsaleigu eða sem nemur um 1,8 milljónum á mánuði fyrir leigu á umframhúsnæði í Hafnarfirði. Ég hef átt nokkra fundi með mínu ráðuneyti, fjármálaráðuneytinu og Framkvæmdasýslu ríkisins um að leita leiða til að koma þessu húsnæði í vinnu eins og það heitir. Niðurstaða er ekki komin í það mál,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið í dag.

Nýtt og kraftmikið fólk

„Við erum að gera skemmtilega hluti og leita að tækifærum sem felast í þessum miklu breytingum. Við höfum fengið inn nýtt og kraftmikið fólk í stað öflugra reynslubolta sem við misstum frá okkur. Á vissan hátt erum við með nýja stofnun og það felast tækifæri í því að vera nánast á byrjunarreit,“ segir Eyþór.

Starfsemi í nýjum höfuðstöðvum Fiskistofu á háskólasvæðinu á Borgum á Akureyri er smátt og smátt að komast í fastar skorður, en formlega var opnað þar fyrir hálfum mánuði. Mikið öldurót fylgdi þeirri ákvörðun stjórnvalda að flytja höfuðstöðvarnar norður og létu um 20 starfsmenn af störfum í kjölfarið. Eftir sem áður er meirihluti starfsmanna Fiskistofu í Hafnarfirði.

Borgir.
Borgir. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Krísustjórnun frá degi til dags

Aðeins fiskistofustjóri flutti með stofnuninni norður og annar starfsmaður hefur nýtt sér tækifæri til að hafa aðstöðu á báðum stöðum. Eyþór dregur ekki dul á að síðustu ár hafi verið erfið í rekstri Fiskistofu.

„Það varð mikil óánægja og rót meðal starfsmanna þegar áformin voru kynnt í lok júní 2014,“ segir Eyþór. „Þetta var strembið og í raun krísustjórnun frá degi til dags í rúmlega eitt ár, því formleg ákvörðun um flutning kom ekki fyrr en 13 mánuðum síðar.

Þann tíma vorum við í limbói um hvað yrði og þessi langi óvissutími var okkur öllum mjög erfiður. Hann skýrist meðal annars af því að fyrst var tilkynnt um áformin, en svo kom í ljós að lagaheimild skorti fyrir flutningnum. Það tók því þennan tíma að eyða allri óvissu og afla lagaheimildar.

Lengi vel gerði fólk ráð fyrir að á 18 mánuðum þyrfti það að hætta störfum hjá Fiskistofu eða flytja til Akureyrar. Þegar í ljós kom að flutningur starfsfólks yrði gerður með starfsmannaveltu fór rykið að setjast. Þá höfðu nokkrir þegar látið af störfum, aðrir fóru að líta í kringum sig í rótinu eftir að áformin voru kynnt og hugsa hlutina upp á nýtt. Fleiri ástæður voru að baki uppsögnum og starfslokum, en við misstum mikla þekkingu og erum enn að byggja starfsemina upp að nýju.“

Starfsmenn Fiskistofu eru um 75 og hefur starfsmannafjöldi ekki breyst síðustu ár fyrir utan tímabundna fækkun 2014-2015 vegna óvissuástands.

Fjöldi starfsmanna í Hafnarfirði ekki undir 20

Núna eru 17 starfsmenn fyrir norðan og tveir bætast væntanlega við fyrir áramót. Með í fjöldanum á Akureyri eru taldir þrír starfsmenn Verðlagsstofu skiptaverðs. Þegar áform um flutning voru kynnt voru fimm starfsmenn Fiskistofu þegar staðsettir á Akureyri, fjórir veiðieftirlitsmenn og einn á skrifstofu. Því hafa í raun níu manns bæst við á Akureyri síðan. Á skrifstofu Fiskistofu í Hafnarfirði starfa 28 manns og þar eru ellefu veiðieftirlitsmenn. Eyþór á ekki von á að fjöldi starfsmanna í Hafnarfirði fari undir 20. Þess má geta að Fiskistofa hefur aldrei farið fram úr fjárheimildum sínum, samkvæmt upplýsingum Eyþórs.

Í Hafnarfirði er m.a. rekin upplýsingatæknideild með Hafrannsóknastofnun, sem þarf þjónustu og ákveðna nálægð. Einnig er þar öflug deild sem sinnir veiðieftirliti, m.a. í vinnsluskipum, og þar er allt landamæraeftirlit eða þriðja ríkis eftirlit vegna slíkra umsvifa á suðvesturhorninu. Þá er Fiskistofa með útibú á Ísafirði, Stykkishólmi, Vestmannaeyjum og Hornafirði þannig að alls er stofnunin með starfsemi á sex stöðum á landinu.

Starfsfólk viti sína stöðu

Þegar Eyþór er spurður hvað læra megi af þessu máli spyr hann hlæjandi á móti hvar hann eigi að byrja, en segir síðan:

„Fyrst og fremst þarf að vanda sig gríðarlega í undirbúningi ef menn ætla að fara út í svona flutninga. Leikreglur slíks verkefnis þurfa að vera skýrar og skrifaðar niður. Þegar uppi eru vangaveltur eða áform þarf starfsfólk að vita frá fyrstu stundu hvar það stendur og hvað bíði þess. Einnig þarf að liggja fyrir á hvaða grundvelli á að framkvæma svona mikla breytingu.“

Eyþór segist þurfa lengri tíma til að meta hvað hafi áunnist, en í öllum breytingum séu fólgin tækifæri. Verkefnið hafi verið kynnt undir formerkjum byggðasjónarmiða og vissulega hafi störfum fjölgað á Akureyri.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert