Slagsmál brutust út á Vopnafirði

Slagsmál brutust út fyrir utan félagsheimilið Miklagarð á Vopnafirði í nótt. Einn þurfti að gista fangageymslur lögreglunnar.

Sá hinn sami var lítillega sár eftir slagsmálin, að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum.

Átökin urðu á meðan á dansleik stóð í félagsheimilinu og tóku nokkrir þátt í þeim. Aðeins þessi eini maður var þó handtekinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert