Bad Breed ekki hleypt til Íslands

Mennirnir voru stöðvaðir við komuna í Leifsstöð.
Mennirnir voru stöðvaðir við komuna í Leifsstöð. mbl.is/Þorsteinn

Fjórir meðlimir vélhjólagengisins Bad Breed MC í Svíþjóð, voru stöðvaðir við komu sína til landsins á föstudag.

Lögreglan á Suðurnesjum fór með fjórmenningana á lögreglustöðina á Suðurnesjum á meðan mál þeirra var til skoðunar.

Frétt mbl.is: Bad Breed í Garðabæ

Þeim var að því loknu birtur úrskurður Útlendingastofnunar um að þeim yrði ekki hleypt inn í landið og var því næst fylgt um borð í flug til Stokkhólms.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert