Bílvelta í Þrengslunum

Bílvelta varð við Þrengslaveg í morgun.
Bílvelta varð við Þrengslaveg í morgun. mbl.is/Rax

Bíll valt í Þrengslunum um níuleytið í morgun. Einn var í bílnum og var hann fluttur á slysadeild til aðhlynningar.

Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi voru meiðslin minniháttar.

Slysið má rekja til slæmrar færðar, en snjókoma var á Hellisheiði í dag. Samkvæmt lögreglunni var bíllinn á sumardekkjum og vill hún benda ökumönnum á að vera með ökutæki sín vel útbúin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert