Hálka á Hellisheiði og í Þrengslum

Hálka er á Hellisheiðinni.
Hálka er á Hellisheiðinni. mbl.is/Rax

Hálka er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka og hálkublettir eru við ströndina og í uppsveitum á Suðurlandi, að því er kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Hálka er einnig á Holtavörðuheiði, Vatnaleið og Fróðárheiði og hálkublettir á Bröttubrekku sem og á einhverjum fjallvegum á Vestfjörðum.

Hálkublettir eru á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert