Samstaða sterkasta vopnið

Konur mættar á samstöðufundinn á Austurvelli.
Konur mættar á samstöðufundinn á Austurvelli. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

„Við verðum að útrýma launamisrétti og tryggja jafnrétti kvenna og karla til starfa. Við þurfum að tryggja stöðu og bæta kjör kvenna í hvívetna óháð fötlun, aldri, búsetu, uppruna, litarhætti, kynhneigð, kynvitund og lífsskoðun. Við þurfum að lengja og bæta fæðingarorlofið, vinna gegn kynskiptu náms- og starfsvali og breyta heftandi staðalmyndum kynjanna.“

Þetta kom meðal annars fram í yfirlýsingu sem lesin var upp samstöðufundi á Austurvelli í Reykjavík í dag í tilefni af kvennafrídeginum þar sem þúsundir kvenna komu saman. Dagurinn var upphaflega haldinn 24. október árið 1975 þegar konur um allt land lögðu niður vinnu til þess að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir þjóðfélagið og vakti hann mikla athygli víða um heim.

Bein umfjöllun mbl.is frá því í dag

Haldið var upp á kvennafrídaginn í annað sinn árið 1985 þegar 25 þúsund konur lögðu niður vinnu. Tveimur áratugum síðar var komið að þriðja skiptinu en þá gengu konur út tugþúsundum saman klukkan 14.08 eða á mínútunni þegar þær fengu ekki lengur greitt á við karla. Árið 2010 gengu þær út klukkan 14.25 og í ár verður gengið út klukkan 14.38. 

„Við höfum þokast áfram um hálftíma á ellefu árum. Tæplega þrjár mínútur á hverju ári. Með þessu áframhaldi þurfum við að bíða í 52 ár eftir að konur fái sömu laun og sömu kjör og karlar. Það er óþolandi!“ segir í yfirlýsingunni. Bent var á að atvinnutekjur kvenna séu að meðaltali 70,3% af tekjum karla.

„Halda vöku sinni, standa saman og sækja fram“

„Störf kvenna eru gróflega vanmetin, vinnumarkaðurinn er kynskiptur, kvennastéttir eru lágt launaðar og launamisrétti fyrirfinnst víða. Konur eru enn í minnihluta í sveitarstjórnum og á Alþingi. Það á líka við í flestum nefndum og ráðum á vegum hins opinbera. Karlar ráða ferðinni í stjórnum flestra fyrirtækja í atvinnulífinu og minnihluti framkvæmdastjóra er konur.“

Konur mættu margs konar fordómum á vinnumarkaði. Þær væru hlutgerðar og kynferðisleg áreitni viðgengist of víða. „Sífellt ber meira á aldursfordómum í garð kvenna. Konur eru líklegri til að vinna hlutastörf, taka langt fæðingarorlof eða hverfa af vinnumarkaði til að sinna ólaunuðum umönnunarstörfum.“

Ennfremur kom fram að mörg ný málefni hefðu komist á dagskrá í jafnréttisbaráttunni svo sem ofbeldi gegn konum og samtvinnun misréttis. „Margvísleg lög hafa verið sett til að tryggja jafnrétti kynjanna, en lagasetningin ein dugar ekki til að breyta þeirri menningu sem ríkir í samfélaginu. Enn er því verk að vinna.“ 

Samstaða væri sterkasta vopnið á slíkum tímum. „Konur og karlar sem styðja og vinna að jafnrétti kynjanna þurfa að halda vöku sinni, standa saman og sækja fram.“ Útrýma yrði meðal annars launamisrétti, tryggja jafnrétti kvenna og karla til starfa og vinna gegn kynskiptu náms- og starfsvali og breyta heftandi staðalmyndum kynjanna.

„Við verðum að auka völd kvenna í atvinnulífinu og í stjórnmálum og fjölga konum í Hæstarétti. Við þurfum að uppræta ofbeldi gegn konum, sem hefur hamlandi áhrif á samfélagsþátttöku kvenna. Við þurfum að tryggja kjarajafnrétti strax!“

Kröfur samstöðufundarins:

  • Jöfn kjör og jöfn laun STRAX
  • Tryggjum stöðu kvenna og bætum kjör kvenna í hvívetna óháð fötlun, aldri, búsetu, uppruna, litarhætti, kynhneigð, kynvitund og lífsskoðun
  • Lengjum og bætum fæðingarorlofskerfið
  • Upprætum staðalmyndir kynjanna og kynskiptingu vinnumarkaðar
  • Aukum völd kvenna í atvinnulífinu og í stjórnmálum og fjölgum konum í Hæstarétti
  • Upprætum ofbeldi gegn konum
Frá kvennafrídeginum árið 1975.
Frá kvennafrídeginum árið 1975.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert