20 hross á Vesturlandsvegi

Rétt fyrir miðnætti var tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um 20 hross á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi. Starfsmenn Reykjavíkurborgar voru ræstir út til að koma þeim á sinn stað sem er ekki við veginn, segir í dagbók lögreglunnar.

Lögregla hafði afskipti af fjórum umferðaróhöppum á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Þrjú þeirra voru minniháttar og einungis um eignatjón á bifreiðum að ræða en í fjórða óhappinu valt bifreið á Suðurlandsvegi við Bolöldu. Betur fór en á horfðist og sluppu ökumaður og farþegi án meiðsla. Bifreiðin var mikið skemmd og flutt af vettvangi með kranabifreið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert