Tveir á gjörgæslu eftir rútuslysið

Rúta fór út af Þingvallavegi og lenti á hliðinni.
Rúta fór út af Þingvallavegi og lenti á hliðinni. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Tveir hinna slösuðu sem lentu í rútuslysinu á Þingvallavegi eru á gjörgæslu. Samtals voru 17 fluttir á bráðamóttöku Landspítalans eftir slysið. Upphaflega komu upplýsingar um að 5-7 væru alvarlega slasaðir, en Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Landspítalans, staðfestir í samtali við mbl.is að aðeins tveir hafi verið fluttir á gjörgæslu.

Enginn hinna 17 sem komu á spítalann hefur enn verið útskrifaður.

Guðný segir að þegar tilkynnt hafi verið um slysið hafi viðbragðsáætlun spítalans verið virkjuð. Í því felist meðal annars að kallað sé út aukastarfsfólk og fylgt sé ákveðnu verklagi sem geri meðal annars ráð fyrir fjöldaslysum.

Klukkan 15.30 var búið að opna Þingvallaveg fyrir umferð á ný.

Samhæfingarmiðstöðin virkjuð

Rút­an fór á hliðina upp úr klukk­an tíu í morg­un vest­an und­ir Litla-Sauðafelli, skammt frá Skála­fellsaf­leggj­ar­an­um. Sam­hæf­ing­ar­stöðin í Skóg­ar­hlíð var virkjuð fljót­lega eft­ir að til­kynnt var um slysið í morg­un.

Aðgerðastjórn lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu hef­ur þá einnig verið virkjuð og Land­spít­al­inn sett­ur á gult viðbúnaðarstig. 

Lög­regl­an ít­rek­ar að þeir sem kunni að hafa tekið upp farþega á svæðinu láti taf­ar­laust vita af því í síma Neyðarlín­unn­ar 112. Lög­regl­an seg­ir mjög áríðandi að þess­ar upp­lýs­ing­ar komi strax fram svo hægt sé að tryggja að all­ir sem voru um borð í rút­unni séu komn­ir i leit­irn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert