Ekið á gangandi vegfaranda

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Ekið var á gangandi vegfaranda á gatnamótum Langholtsvegar og Skeiðarvogs um klukkan 8 í morgun. Vegfarandinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild til aðhlynningar. Samkvæmt lögreglu er ekki vitað um meiðsl viðkomandi en þau eru talin minniháttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert