Bílvelta varð á Kjalveginum við Fremstaver um tíuleytið í kvöld. Lögregla, sjúkrabíll og björgunarsveitir voru sendar á staðinn og voru á leið til baka með ökumann og tvo farþega bílsins að sögn lögreglunnar á Selfossi.
Ökumaður og farþegar höfðu allir náð að komast af sjálfsdáðum út úr bílnum er lögregla kom á vettvang og báru sig vel, þannig að ekki talið að meiðsl á fólkinu séu alvarleg.
Samkvæmt tilkynningu þá er hálka, rok og ofankoma á slysstað.