Umferðaróhapp varð á Suðurlandsvegi við mislæg gatnamót ofan Árbæjar, þegar tóm vélsleðakerra aftan í jeppa lenti rakst á fólksbíl sem var að koma úr gagnstæðri átt.
Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Uppfært kl. 14.15: Enginn var fluttur á slysadeild vegna óhappsins. Dælubíll slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hefur verið sendur á staðinn til að hreinsa upp glussa.
Talsverð bílaröð hefur myndast á Suðurlandsvegi vegna óhappsins en lögreglan stjórnar umferð á vettvangi.