Tilkynnt var um ofsaakstur bifreiðar innanbæjar á Sauðárkróki í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi vestra, en þar segir að sést hafi til sömu bifreiðar þar sem henni var spólað í hringi á planinu við Skagfirðingabúð.
Er aksturinn sagður hafa valdið íbúum miklu ónæði og skorar lögreglan á fólk að tilkynna umsvifalaust um slíka hegðun ökumanna, verði það vart við hana, þar sem aksturslagið geti skapað stórhættu.