Forsetinn fer í heimsókn til Danmerkur

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ásamt eiginkonu sinni Elizu Reid.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ásamt eiginkonu sinni Elizu Reid. mbl.is/Júlíus

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur þekkst boð Margrétar II Danadrottningar um að hann og eiginkona hans Eliza Reid komi í opinbera heimsókn til Danmerkur í janúar. Gert er ráð fyrir að heimsóknin hefjist 24. janúar næstkomandi og formleg dagskrá standi í tvo daga.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forsetans, en nánari upplýsingar um heimsóknina og dagskrá verða kynntar þegar nær dregur ferðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert