Stjörnublys í eigu Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa verið færð í vörslu Landhelgisgæslunnar, sem mun eyða þeim lögum samkvæmt.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. Fréttatíminn greindi frá því í gær að Neytendastofa hefði fengið blysin til rannsóknar í lok síðasta árs. Í ljós hefði þá komið að þau uppfylltu ekki reglur um öryggi flugelda.
Í tilkynningunni segir að Landsbjörg hafi tilkynnt Neytendastofu þann 25. júní að blysunum yrði eytt, þar sem þau hafi ekki staðist gæðakröfur.
„Um er að ræða 1.422 blys sem geymd hafa verið við bestu hugsanlegu aðstæður á viðurkenndan hátt þar sem farið er eftir stöngum öryggisreglum. Við þær aðstæður voru umrædd blys geymd þar til Landhelgisgæslan tók þau til förgunar.“