Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í kvöld vegna elds í fjölbýlishúsi í Árbæjahverfi í Reykjavík.
Þegar á staðinn kom reyndist hafa kviknað í örbylgjuofni en heimilisfólkið hafði ætla að poppa örbylgjupopp.
Örbylgjuofninn er ónýtur en ekki komst eldur í annað. Reykræsta þurfti íbúðina.