Styrkur svifryks er yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag. Við loftgæðamælistöðina á Grensásvegi mælist styrkurinn 366,4 µg/m3 sem er rúmlega sjö sinnum meira en 50 µg/m3 mörkin leyfa.
Styrkurinn er einnig yfir mörkum við loftgæðamælistöðina við Eiríksgötu eða 86,28 50 µg/m3.
Á þriðju stöðinni, sem er í Rofabæ, er styrkurinn 30,46 µg/m3 og því undir heilsuverndarmörkum. Fjórða stöðin er í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum en hún liggur niðri vegna bilunar.
Á vef Umhverfisstofnunar má sjá að svifryk á Grensásvegi hefur verið yfir mörkum frá því fyrir klukkan átta í morgun. Einnig er hægt að fylgjast með loftgæðum á vef Reykjavíkurborgar.